Um Austur Horses

Austur Horses var búið til til að safna söluhrossum af Austurlandi saman á einn stað og gera þau auðveldari að finna.

Það sem við gerum

Við erum ekki hestasala og tökum ekki þátt í viðskiptunum. Eigendur veita upplýsingarnar um hrossin og kaupendur hafa samband beint við þá.

Austur Horses sér um að birta upplýsingarnar á einfaldan og snyrtilegan hátt. Skráning er ókeypis og engin prósenta er tekin af sölu.

Beint samband

Kaupendur hafa samband beint við eigandann.

Meiri sýnileiki

Einn sérstakur vettvangur fyrir hesta af Austurlandi.

Fagleg myndataka

Ef eiganda vantar betri myndir eða video er hægt að bóka það sem valkvæða aukaþjónustu.